Kæru foreldrar og nemendur Norðlingaskóla.
Eins og ykkur er kunnugt standa yfir lóðarframkvæmdir við skólann. Gerð var krafa um að vinnuvélar væru innan lokaðrar girðingar og í frímínútum kl. 09:20 og í hádeginu væru vélarnar stöðvaðar. Unnið hefur verið innan girðingarinnar í frímínútunum 10:40 – 11:00 og starfsfólk skólans verið beðið að fylgjast vel með að nemendur færu ekki inn fyrir girðinguna.
Í vetrarleyfi skólans verður lögð mikil áhersla á að drífa áfram jarðvegsframkvæmdir við skólann. Stefnt er að malbikun hluta leiksvæðisins áður en vetrarleyfi lýkur. Þetta hefur í för með sér að stórvirkar vinnuvélar verða að störfum á svæðinu næstu daga.
Það eru vinsamleg tilmæli skólans til foreldra að þeir brýni fyrir börnum sínum að vera ekki í námunda við vinnusvæðið í vetrarleyfinu og hvetja þau til að fara með gát alla daga sem vélar og tæki eru að störfum við skólann.
Skólinn vill þakka foreldrum sem hafa komið með gagnlegar ábendingar tengdar framkvæmdunum.
Bestu kveðjur og ósk um gott vetrarleyfi.
Skólastjórnendur og starfsfólk Norðlingaskóla

