Posted by: nordlingaholt | nóvember 13, 2011

Aðalfundur íbúasamtaka Norðlingaholts 2011

Aðalfundur íbúasamtakana verður haldinn í Norðlingaskóla mánudaginn 28. nóvember kl. 20:30.

Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Reikningar lagðir fram
3. Kosning formanns og stjórnar
4. Kosning skoðunarmanna reikninga
5. Önnur mál.

Fundað verður í miðrými Norðlingaskóla.

Stjórnin.

www.nordlingaholt.is
https://www.facebook.com/nordlingaholt

Posted by: nordlingaholt | október 20, 2011

Orðsending frá Norðlingaskóla – Lóðarframkvæmdir

Kæru foreldrar og nemendur Norðlingaskóla.

Eins og ykkur er kunnugt standa yfir lóðarframkvæmdir við skólann. Gerð var krafa um að vinnuvélar væru innan lokaðrar girðingar og í frímínútum kl. 09:20 og  í hádeginu væru vélarnar stöðvaðar. Unnið hefur verið innan girðingarinnar í frímínútunum 10:40 – 11:00 og starfsfólk skólans verið beðið að fylgjast vel með að nemendur færu ekki inn fyrir girðinguna.

Í vetrarleyfi skólans verður lögð mikil áhersla á að drífa áfram jarðvegsframkvæmdir við skólann. Stefnt er að malbikun hluta leiksvæðisins áður en vetrarleyfi lýkur. Þetta hefur í för með sér að stórvirkar vinnuvélar verða að störfum á svæðinu næstu daga.

Það eru vinsamleg tilmæli skólans til foreldra að þeir brýni fyrir börnum sínum að vera ekki í námunda við vinnusvæðið í vetrarleyfinu og hvetja þau til að fara með gát alla daga sem vélar og tæki eru að störfum við skólann.

Skólinn vill þakka foreldrum sem hafa komið með gagnlegar ábendingar tengdar framkvæmdunum.

Bestu kveðjur og ósk um gott vetrarleyfi.

Skólastjórnendur og starfsfólk Norðlingaskóla

Framkvæmdum flýtt við Norðlingaskóla

“Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu borgarstjóra um að flýta eftir fremsta megni framkvæmdum við Norðlingaskóla. Verður veitt 180 milljónum króna til viðbótar í framkvæmdir við skólann umfram það sem áætlað hafði verið til verksins á þessu ári.
Öll kennslurými, húsnæði stjórnunar og sameiginleg rými hafa þegar verið tekin í notkun, samtals um 5000 fermetrar. Áætlanir gera ráð fyrir að framkvæmdum við sérkennslurými, bókasafn og kennslueldhús ljúki á næstu 2-3 vikum. Íþróttahús og tónlistarskóli verða tekin í notkun um næstu áramót. Deild frá leikskólanum Rauðhóli hefur verið starfrækt í bráðabirgðahúsnæði á lóðinni en hún mun flytja í varanlegt húsnæði í skólanum í byrjun næsta árs.

Í tillögu borgarstjóra er lagt til að framkvæmdum verði flýtt þannig að allt skólahúsnæðið verði komið í notkun og skólalóð tilbúin á fyrri hluta árs 2012. Alls verður 1.100 milljónum króna varið til framkvæmda við Norðlingaskóla á árinu 2011.

Í upphaflegri áætlun var ráðgert að ljúka framkvæmdum árið 2013.

„Við höfum lagt áherslu á að umhverfi barna sé öruggt. Þarna verðum við að bæta í því sá tími sem við áætluðum til framkvæmda í upphafi er einfaldlega of langur,“ segir Jón Gnarr borgarstjóri.”
(Fréttatilkynning frá Reykjavíkurborg, 8.9.2011)

Sjá nánar hér á síðu Reykjavíkurborgar: http://www.reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-757/521_read-28053/

 

Íbúasamtökin Norðlingaholti fagna þessu framtaki borgarstjóra og borgarráðs.

Ævintýrahóll - Tímabundin aðstaða leikskólans Rauðhóls á lóð Norðlingaskóla

Drengur á fimmta ári sem var í boltaleik í einum af skálum leikskólans Rauðhóls á Ævintýrahóli varð fyrir því að fá ljós ofan á andlit sitt og skarst hann talsvert í andliti.
Slysið varð í einum af tímabundnum skálum sem leikskólinn Rauðhól hefur afnot af á lóð Norðlingaskóla.

Drengurinn hafði verið ásamt fleiri börnum við leik í stofunni með mjúkann svampbolta og fór boltinn í ljósið með þeim afleiðingum að grind sem neðst er á ljósinu datt á andlit barnsins og aðeins munaði einum sentimetra að hann hefði skorist á auga. Hann var fluttur á spítala með sjúkrabíl þar sem hlúð var að sárum hans. Samkvæmt heimildum íbúasamtakana er líðan drengsins ágæt en honum er skiljanlega nokkuð brugðið eftir þetta.

Þetta atvik undirstrika það að mjög mikilvægt er að tryggja nægt fjármagni til þess að klára megi nýjan ófrágenginn leikskóla í húsnæði Norðlingaskóla og að það dragist ekki lengur að opna hann.

En á meðan notast er við skála sem tímabundna aðstöðu leiksólans að þá krefjast íbúasamtökin Norðlingaholti þess að Reykjavíkurborg sjái til þess að öryggi barna í skálum leikskólann Rauðhóls verði tryggt ásamt því að gengið verði tryggilega frá sameiginlegri lóð leiksólans og Norðlingaskóla.

Posted by: nordlingaholt | september 1, 2011

Lögregla staðfestir ekki lýsingu á Renault

Íbúasamtökin Norðlingaholti vilja vekja athygli á því að Lögreglan í Reykjavík segir að ekki sé hægt að staðfesta sögusagnir um Renault Kangoo bíl.

Stefán Eiríksson: “…við getum ekki staðfest þessa lýsingu”

Hann segir einnig að..  ”…lögreglan taki tilkynningar af þessum toga mjög alvarlega og sé að rannsaka þessi mál af fullum krafti, þar á meðal á grunni upplýsinga úr öryggismyndavélum. Mikilvægt er í öllum þeim tilvikum þar sem barn greinir frá reynslu af þessu tagi að hafa þegar samband við lögreglu í síma 112.

=============================================

Lýsing á bíl þess er reyndi að plata barn með sér í bíl við Lækjarskóla á því ekki við rök að styðjast eins og komið er:

“Bíllinn sem reyndi að lokka barn uppí við lækjarskóla, gæti verð Blár Renault með rennihurð, mögulega Kangoo eða express með hvítum eða vel upplituðum hliðarlistum og smá tjóni á neðan við afturljós, rauð númer (vsk bíll) og H í stöfunum, svartur plastpoki límdur fyrir rúðu. Eldri maður feitlaginn með hárið rakað mjög stutt. (Dreifið sem víðast)”

Við hjá íbúasamtökum Norðlingaholts óskum hér með eftir að sem allra fyrst verðir tekið til hendinni á lóð Norðlingaskóla. Þar eru nú spýtnadrasl, hellur og jarðvinnuefni sem ætti ekki að vera á leisksvæði barna.

Einnig þarf að hraða brottflutningi skúra sem enn standa á lóðinni. Það er óásættanlegt að börn í Norðlingahverfi þurfi að hafa byggingarusl og jarðefni auk skerts leiksvæðis í þann tíma sem það tekur fyrir aðra skóla og hverfi að bíða eftir grenndarkynningu svo setja megi skúrana annað. Nauðsynlegt er að koma skúrunum sem allra fyrst af lóð Norðlingaskóla og í geymslu annarsstaðar.

Skúr bíður eftir grenndarkynningu annars hverfis

Íbúasamtökin skora á Reykjavíkurborg að hraða hreinsun skólalóðar Norðlingaskóla.

Posted by: nordlingaholt | ágúst 31, 2011

Ástand á lóð Norðlingaskóla enn óásættanlegt

Nú þegar Norðlingaskóli hefur verið með skólahald í rúma viku og leikskólinn Rauðhóll er að taka nýja og stærri deild til notkunar á lóð skólans að þá er frágangur lóðarinnar enn óásættanlegur.

Hellur, timbur og jarðvinnuefni liggja á leiksvæðum barnanna og skapar hættur á slysum.

Spýtnarusl á leiksvæði barna í Norðlingaskóla og Ævintýrajhóls, leikskóladeildar Rauðhóls

Hellur og sandhólar á leiksvæði Norðlingaskóla

Uppgrafningur og hellur

Íbúasamtökin skora á Reykjavíkurborg að koma skólalóð sem fyrst í ásættanlegt horf svo ekki megi verða skaði af.

—————-
Uppfært 3.9. 2011 – Eftir að íbúasamtökin birtu þessa grein og vöktu máls á málinu lögðu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fram fyrirspurn í menntaráði

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins óska eftir upplýsingum um frágang skólalóðar Norðlingaskóla og verkáætlun vegna byggingarframkvæmda við skólann og hvenær til stendur að flytja burt skála, sem enn standa á lóðinni. Óskir hafa borist frá íbúum um að hreinsun skólalóðarinnar verði hraðað en kvartað hefur verið yfir því að timbur, hellur, jarðvinnuefni og annað byggingarefni, sem ekki ætti að vera á leiksvæði barna, sé á víð og dreif um skólalóðina, og valdi slysahættu.

Svör hafa ekki enn borist en verða birt hér um leið og þau berast.

Posted by: nordlingaholt | ágúst 31, 2011

Þrír skúrar Norðlingaskóla verða að sumarbústöðum

Þrír af þeim fjölmörgu skúrum sem enn standa á lóð Norðlingaskóla hafa nú verið seldir til einstaklinga sem ætla að nota þá sem sumarbústaði í Grímsnesi og víðar. Smiðir vinna nú í skúrunum við að breyta þeim úr skólastofum og í sumarhús.

Iðnaðarmenn breyta skúrum Norðlingaskóla í sumarhús

Áætlað var að þeir yrðu fluttir af lóð Norðlingaskóla fimmtudaginn 1. september en vegna veðurspár dregst þessi flutningur til aðfararnótt mánudagsins 5. september.

Posted by: nordlingaholt | júní 7, 2011

Íbúasamtök og foreldrafélög taka þátt í grenndarskógi

Íbúasamtök og foreldrafélög taka þátt í grenndarskógi
Laugardaginn 4. júní var skrifað undir grenndarskógasamning um Björnslund í Norðlingaholti.

Norðlingaskóli og Leikskólinn Rauðhóll hafa um nokkurra ára skeið notað lundinn í leik- og grunnskólastarfi. Eftir að byggt var skógarhús í lundinum hefur Rauðhóll verið daglega með hluta af starfsemi sinni í skóginum.  Þar una börnin sér vel í starfi og nýta margt sem til fellur við leik og föndur.

Það er nýlunda að skólarnir, foreldrafélög þeirra og íbúasamtök geri sameiginlegan samning við Lesið í skóginn verkefnið (LÍS) og þar með samstarf við Umhverfissvið, Menntasvið, Menntavísindasvið HÍ og Skógræktina um slíkt samstarf.

Þegar byrjað var að nota hugtakið “grenndarskógur” yfir skóga til nota í skólastarfi var m.a. haft í huga aðkoma annarra aðila í hverfinu sem stutt gætu við skipulega nýtingu á skólaskóginum, því oftar en ekki eru grenndarskógarnir um leið ætlaðir almenningi.Með þessari undirskrift er í fyrsta skipti skapaðar forsendur til að hlúa að og nýta skóginn alhliða fyrir íbúa hverfisins og í skólastarfi. Með því fæst mikilvæg grenndargæsla og ábyrgð sem skilar sér vonandi í góðri umgengni og metnaði til að nýta skóginn á sem fjölbreyttastan hátt fyrir hverfið.

Á sama tíma var Norðlingaskóla slitið í sjötta sinn við hátíðlega athöfn..

Á myndinni má sjá Siv Vigþórsdóttir flytja ávarp og slíta skólanum formlega.

Á hinni myndinni má sjá fulltrúa þeirra aðila sem skrifuðu undir samninginn: Talið frá vinstri:
Ómar Örn Jónsson formaður Foreldrafélags Rauðhóls, Valgerður K. Sverrrisdóttir formaður Vaðsins, foreldra- og starfsmannafél ags Norðlingaskóla, Ellý Katrín Guðmundsdóttir sviðsstjóri Umhverfis- og samgöngusviðs R, Ólafur Oddsson verkefnisstjóri  LÍS, Sif Vigþórsdóttir skólastjóri Norlingaskóla, Guðrún Sólveig leikskólastjóri Rauðhóls og Sigurður Rúnarsson Beck formaður íbúasamtaka Norðlingaholts.

 

Posted by: nordlingaholt | júní 7, 2011

Byggingakrani við Norðlingaskóla felldur

Byggingu Norðlingaskóla miðar vel.

Eftir byggingastjóra Norðlingaskóla var haft nýverið að skólinn væri vel á áætlun þrátt fyrir að margt líti enn út fyrir að vera óklárað. Nýtt skólahúsnæði mun að fullu verða tekið í gagnið við skólasetningu nýs skólaárs í ágúst næstkomandi.

Í gær 6. júní var þeim áfanga náð að byggingarkrani sem notaður hefur verið við að reisa skólann, var felldur niður og fjarlægður. Ásjóna Norðlingaholts hefur því breytst tölvuvert við þetta.

 

Í tilkynningu frá Sif skólastjóra kemur fram að skólinn sé lokaður frá 20. júní. Það er því ljóst að seinnipart sumars þegar nýtt skólaár hefst mun taka við nýjir og breyttir tímar fyrir nemendur og starfsfólk Norðlingaskóla.

Síðastliðinn vetur hafa Íbúasamtök Norðlingaholts, Norðlingaskóli, Leikskólinn Rauðhóll, Foreldrafélög skólanna, Umhverfis og samgöngusvið Reykjavíkurborgar og LÍS verkefnið verið að undirbúa samstarfsvettvang um nýtingu og umsjón Björnslundar í Norðlingaholti.

Var sett á fót nefnd sem í vetur hefur unnið að mótun markmiða fyrir framtíð Björnslundar. Markmiðunum hefur verið ætlað að stuðla að hagnýtri nýtingu á Björnslundi fyrir íbúa í Norðlingaholti og sem grenndarskóg í skóla- og tómstundastarfi. Stefnt skal að því að efla virðingu fyrir lundinum og að ásýnd hans verði íbúum til sóma. Stefnt skal og að því að því að öll mannvirki og aðstaða sé vel hönnuð, samræmd og upp sett svo ekki valdi truflandi áhrifum á þá sem vilja njóta náttúrulegs umhverfis í lundinum. Stuðlað skal að góðri umgengi og að efla útvist og almenna lýðheilsu íbúa.

Nefndin myndaði með sér samstarfshóp sem halda á utan um nýtingu á skóginum, setur verklags- og umgengnisreglur sem aðilar vinna sameiginlega eftir. Til grundvallar er nytjaáætlun um skóginn sem felur m.a. í sér nýtingu á skóginum, friðun svæða, gróðurbætur og uppsetningu á leik- og kennsluaðstöðu. Tekið verði mið af ólíkum þörfum skólanna og íbúa á svæðinu.

Nú er komið að því að þessi samningur verði formlegur og verður hann undirritaður af þeim sem að honum standa við hátíðlega athöfn á vorhátíð Norðlinga í Björnslundi við Búðatorg laugardaginn 4. júní . Hefst athöfnin kl. 10.30. Á þessari vorhátíð er jafnframt verið að slíta Norðlingaskóla í sjötta sinn og býður foreldrafélagið VAÐIÐ ásamt íbúasamtökunum upp á leiktæki og vetingar í tilefni dagsins.

Eru íbúar Norðlingaholts, vinir, velunnarar og áhugamenn um útivistarsvæði í höfuðborginni hvattir til að fjölmenna og taka þátt í þessum áfanga með Norðlingum.

Nánar á Facebook hér og viðburður  hér.

Sjáumst öll

Kennarar hér við Norðlingaskóla eru að fara í á leið til Bandaríkjanna í námsferð.

Til fjáröflunar verða þau með ljúffengar nýbakaðar bollur til sölu á laugardaginn. Tilvalið í morgunmatinn eða sem nasl með Júróvisjón.

Tíu bollur í poka fyrir aðeins þúsundkall!

Þau skora á ykkur að vera nú gjafmild og gráðug í senn. Sendið pantanir á netfangið bjornkennari@gmail.com – tilgreinið fjöld poka og heimilisfang og þau koma með rjúkandi bollurnar til ykkar – hvert sem er í Norðlingaholtshverfi – þegar ykkur hentar milli kl. 11 og 14 á laugardaginn.

Verði ykkur að góðu!

Sjá nánar á hér: http://www.facebook.com/event.php?eid=221497934543728

Posted by: nordlingaholt | maí 2, 2011

Sjáum í útigallanum

Posted by: nordlingaholt | apríl 28, 2011

Íbúafundur um Björnslund


Við viljum bjóða þér að koma á opin íbúafund um málefni Björnslundar.

Farið verður yfir nýjan samning sem stendur til að skrifa undir þann 4. júní 2011. Samningurinn er um nýtingu Björnslundar sem grenndarskógur.

Fundurinn verður í skógarhúsinu í Björnslundi þriðjudaginn 3. maí næstkomandi kl 20:00.

Á fundinum verða fulltrúar garðyrkjudeildar Reykjavíkurborgar, Norðlingaskóla, Rauðhóls, foreldrafélaga beggja skóla og íbúasamtaka Norðlingaholts.

Kveðja,
Samstarfshópur Björnslundar.

Posted by: nordlingaholt | apríl 13, 2011

Hvað má betur fara í Norðlingaholti?

Norðlingaholt

Íbúasamtök Norðlingaholts halda hverju sinni lista yfir það sem betur mætti fara í hverfinu og koma ábendingum þar um á framfæri við borgaryfirvöld. Ef þú eða aðrir íbúar hafa ábendingar og eða myndir af því sem betur mætti gera má senda slíkt á netfang íbúasamtakana ibnordlingaholts@gmail.com

Posted by: nordlingaholt | mars 14, 2011

Góugleði Norðlinga

Góugleði 2011Í annað sinn er komið að Góugleði Norðlinga og að þessu sinni í samstarfi með Íbúasamtökum Norðlingaholts. Nú er tilvalið tækifæri að gera sér glaðan dag með nágrönnum, vinum og kynnast öðrum Norðlingum.

Húsið opnar kl. 21:00 og stendur gleðskapurinn til kl. 02:00.

Ekki verður bar á staðnum eða veitingar til sölu — gestir eru beðnir um að koma með eigin drykkjarföng og það sem þeir vilja í sig láta.

Aldurstakmark 22 ára

Miðaverð í forsölu kr. 2.000.-

Miðaverð við innganginn kr. 2500 ,-

Mætum öll, gerum okkar glaðan dag og aukum samheldni og samkennd hér í holtinu fagra.

Til að nálgast miða í forsölu hafið þá samband við okkur.

Sóley Lára Árnadóttir            soleylara@birkir.net

Þórey Arna Árnadóttir           thoreyarna@gmail.com

Posted by: nordlingaholt | nóvember 8, 2010

Ályktun aðalfundar íbúasamtaka Norðlingaholts 2010

8. nóvember 2010

Aðalfundur íbúasamtaka Norðlingaholts haldin fagnar þeim áfanga sem náðist í haust að taka fyrsta áfanga Norðlingaskóla í notkun.

 Um leið lýsum við furðu okkar á þeirri áfangaskiptingu sem framkvæmd er,  þ.e. að taka tveggja hæða skólabyggingu í notkun án  lyftu. Slíkt er lögbrot og borginni til háborinnar skammar, ekki síst í ljósi þess að nú eru einungis tveir mánuðir þar til málefni fatlaðra verða flutt yfir til sveitarfélaganna. Vonandi eru þetta ekki þau skilaboð sem borgin vill senda fötluðu fólki.

 Á annað hundrað börn, með lögheimilisfestu í Norðlingaholti, eru í leikskólum utan hverfis í dag og fer þeim fjölgandi þar sem ynnstu árgangar eru fjölmenustu árgangar hverfisis. Getuleysi borgaryfirvalda í leikskólamálum hverfisis er ótrúlegt.

 Þó við vitum að núverandi staða er ekki á ábyrð núverandi borgarstjórnar  þá er samt rétta að minna á að borgarstjóri var að leita að verkefnum í sumar til að auka atvinnu og Samfylkingin lofaði auknum störfum í kosningum í vor.  Hér býður verk sem er búið að bjóða út en vantar fjármagn til að klára það. 
Sveitarfélag sem ekki hefur burði til að standa við lögboin verkefni sín hlýtur að þurfa að leggja gæluverkefni til hliðar og láta upbygginu skóla hafa forganga.

Því gagnrýnum við harðlega þann drátt sem orðinn er á uppbyggingu skólamannvirkja í Norðlingaholti  og skorum  á borgaryfirvöld að tryggja fjármagn til að ljúka framkvæmdum við skólann á næsta ári.

Samþykkt á aðalfundi íbúasamtaka Norðlingaholts 8. nóvember 2010

Posted by: nordlingaholt | nóvember 8, 2010

Ný stjórn íbúasamtaka Norðlingaholts

 

Reykjavík  8. nóvember 2010

Ný stjórn var kosin á aðalfundi íbúasamtaka Norðlingaholts sem haldinn var í Norðlingaskóla í kvöld. Formaður var kosinn beinni kosningu en stjórnin mun hittast við fyrsta tækifæri og skipta með sér verkum. 

Stjórnina skipa:

Formaður, Sigurður Rúnarsson Beck  srunarsson@gmail.com
Aðalmaður, Valgerður Sveinsdóttir valgerdursv@gmail.com
Aðalmaður, Emelía Eiríksdóttir emeliaeiriksdottir@hotmail.com
Aðalmaður, Carl Jóhann Gränz carlj@simnet.is
Aðalmaður, Konráð Gylfason konni@hotmail.com
Varamaður, Berglind Eva Ólafsdóttir Berglind@samband.is
Varamaður, Ólafur Arnar Jónsson Olafurj@ust.is
  
Skoðunarmenn reikninga: Sveinn Bjarnason og Matthías Þórarinsson 

Stjórnin.


Posted by: nordlingaholt | október 21, 2010

Aðalfundur íbúasamtaka Norðlingaholts

Aðalfundur íbúasamtaka Norðlingaholts

Aðalfundur íbúasamtakana verður haldinn í Norðlingaskóla mánudaginn 8. nóvember kl. 20:30.

Dagskrá:

  1. Skýrsla stjórnar.
  2. Reikningar lagðir fram
  3. Kosning formanns og stjórnar
  4. Kosning skoðunarmanna reikninga
  5. Önnur mál.

Hvetjum sem flesta til að mæta.

Stjórnin.

    

Skúrabarn í Norðlingaskóla   

Fréttatilkynning  

Þriðjudaginn 5. október, um kl. 16:00 ætla íbúar úr Norðlingaholti að hittast við Iðnó og fara þaðan í „Meðmælagöngu” til Ráðhúss Reykjavíkur á fund borgarstjóra, Jóns G. Kristinssonar.

    

      

Tilgangur Meðmælagöngunnar er að vekja athygli borgarstjóra og borgarstjórnar á nauðsyn þess að lokið verði við skólabyggingu Norðlingaskóla á næsta ári og þrýsta á að við gerð fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar fyrir næsta ár verði gert ráð fyrir nægu fjármagni til verksins svo unnt verði að ljúka skólabyggingunni árið 2011. Starfsemi skólans hóf sitt stjötta starfsár nú í haust í bráðabirgðahúsnæði sem stendur saman af skúrum í misgóðu ástandi.    
Borgarstjóra verður af þessu tilefni einnig færð Óskakúla íbúa, en í kúluna hafa íbúar Norðlingaholts sett miða sem þeir hafa skrifað á óskir sínar um allskonar úrbætur í hverfinu.    

  

Á meðfylgjandi mynd má sjá nemanda í Norðlingaskóla mála skilti sem hann mun bera í Meðmælagöngunni næsta þriðjudag.     
Fyrir göngunni standa foreldrafélag leikskólans Rauðhóls, foreldra- og starfsmannafélag Norðlingaskóla og Íbúasamtök Norðlingaholts.     
Nærri 500 manns hafa nú skráð sig á meðmælasíðuna „Hvetjum Reykjavíkurborg að ljúka byggingu Norðlingaskóla árið 2011” á Facebook og er slóðin     

http://bit.ly/c5Vbjm  og frekari upplýsingar er að finna á www.nordlingaholt.is        

Við teljum það mjög mikilvægt er að Reykjavíkurborg ljúki alveg við byggingu Norðlingaskóla árið 2011 svo hætta megi að nota bráðabirgðahúsnæði sem staðið hefur á lóð skólans frá 2005.

Norðlingaholt má ekki við því lengur að stór hluti skóla og leikskóla séu í bráðabirgðahúsnæði eða að börn hverfisins fái hreinlega ekki pláss í leikskóla inna hverfis.

Nokkuð er þó um það foreldrar hafi áhyggjur af því að ekki náist að klára skólabyggingu á næsta ári eins og stefnt hefur verið að af framkvæmdasviði. Talsvert er enn ófrágengið og aðeins ein álma orðin hæf til kennslu. Efri bekkir eiga að fara í nýbygginguna síðar á þessu ári og þá upp á 2. hæð.

• Eins og staðan er í dag er þar t.d. engin lyfta og því ekki hægt að koma þeim á milli hæða sem eiga erfitt með gang eða eru í hjólastól. Lyftan sem gert er ráð fyrir er akkúrat í ókláraða hlutanum sem ekki er orðinn tengdur þeim hluta sem nú er í notkun.

•Leikskólamál eru hér einnig í miklum kröggum hér í hverfinu. Aðeins einn leikskóli er starfandi hér og er búinn að bæta við sig útibúi í Björnslundi og ætlar nú að bæta við sig öðru útibúi í skálum sem eru að losna í Norðlingaskóla og er það vel. Þetta losar um 130 pláss fyrir börn. Okkur telst til að það séu um 250 börn á aldrinum 2ja til 5 ára hér í hverfinu.

Það er íbúum hér mjög mikilvægt að í undirbúningi næsta fjárhagsárs verði gert ráð fyrir nægilega miklu fé til að klára megi skólabygginguna fyrir skólabyrjun árið 2011 eða síðasta lagi um áramótin 2011-2012.

Margt gott hefur verið gert í öðrum úthverfum Rvíkb. og er það vel.

En Norðlingaholt má ekki lengur sitja á hakanum hvað varðar skóla og leikskólaaðstöðu.

Ljúkum þessu þarfa þingi sem skólabyggingin er!

Við teljum það mjög mikilvægt er að Reykjavíkurborg ljúki alveg við byggingu Norðlingaskóla árið 2011 svo hætta megi að nota bráðabirgðahúsnæði sem staðið hefur á lóð skólans frá 2005.

Norðlingaholt má ekki við því lengur að stór hluti skóla og leikskóla séu í bráðabirgðahúsnæði eða að börn hverfisins fái hreinlega ekki pláss í leikskóla inna hverfis.

Nokkuð er þó um það foreldrar hafi áhyggjur af því að ekki náist að klára skólabyggingu á næsta ári eins og stefnt hefur verið að.

Að þessum meðmælum standa eftirfarandi félög

· Íbúasamtök Norðlingaholts (http://www.nordlingaholt.is/)
· Foreldrafélag Norðlingaskóla (http://www.nordlingaskoli.is/)
· Starfsmannafélag Norðlingaskóla (http://www.nordlingaskoli.is/)
· Foreldrafélag Rauðhóls (http://www.raudhollinn.is/)

Vefsíða:
http://bit.ly/c5Vbjm

Posted by: nordlingaholt | ágúst 23, 2010

Göngubrú frá Norðlingaholti í Selás

Við vekjum athygli á þessu:

Drög að tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024
17.05.2010

Selás-Norðlingaholt. Göngubrú.
Drög að tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024
Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkur

Fyrirhugað er að auglýsa breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024 vegna tillögu að nýrri göngutengingu, mislægri, yfir Breiðholtsbraut á milli Seláshverfis og Norðlingaholts.Tengingin, sem verður í formi göngubrúar, er ætlað að bæta samgöngur og umferðaröryggi þeirra sem ferðast á milli viðkomandi hverfa. Nánari lýsing framkvæmdar verður sett fram í deiliskipulagi.

Breytingartillagan liggur fyrir í drögum og er nú til kynningar og umsagnar samkvæmt 17. gr. 1.mgr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. Upplýsingar um breytinguna er að finna á vefsíðu skipulags- og byggingarsviðs (skipbygg.is). Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna geta einnig snúið sér til skrifstofu skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar, Borgartúni12-14.

Auglýsing aðalskipulagsbreytingar skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga verður tilkynnt síðar.

Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkur

Posted by: nordlingaholt | ágúst 23, 2010

Skólasetning Norðlingaskóla

 

Norðlingaskóli var settur mánudaginn 23. ágúst kl. 16:00 í Björnslundi, útiskólastofu skólans.

Stutt samkoma var í lundinum við Skógarhúsið og að því loknu var boðið upp á hollustuhressingu í tilefni dagsins. Foreldrar, yngri og eldri systkini, ömmur og afar og aðrir áhugamenn um skólann okkar undu sér vel í frábæru veðri.

Kennsla í skólanum hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 24. ágúst kl. 08:10 hjá öllum nemendum og munu umsjónarkennarar hitta nemendur sína í heimastofum og kynna fyrir þeim starf vetrarins.  Skipulagið fyrstu vikuna verður að einhverju leyti óhefðbundið.

Posted by: nordlingaholt | mars 2, 2010

Góugleði Norðlinga

Posted by: srunarsson | desember 29, 2009

Kyndla vora hefjum hátt, horfið kveðjum ár

Fylkisbrenna

Áramótabrennur verða í Reykjavík með hefðbundnu sniði og í fyrra. Þær verða eins og fyrri ár níu talsins og verður eldur borinn að þeim kl. 20:30 á gamlárskvöld.   

Fylkir verður með sína árlegu Fylkisbrennu, við Rauðavatn og gert ráð fyrir að hún verði mjög stór. 

Nánari upplýsingar um brennur í Reykjavík fást á síðu Reykjavíkurborgar og á yfirlitskorti yfir brennur í Reykjavík

Fyrirsögning hér að ofan er fengin úr þrettándakvæði Jóns Ólafssonar.  Birtum hér textann allan fyrir þá sem vilja æfa sig fyrir gamlárskvöld.

MÁNINN HÁTT Á HIMNI SKÍN

Máninn hátt á himni skín,
hrímfölur og grár.
Líf og tími líður
og liðið er nú ár.
 
Bregðum blysum á loft,
bleika lýsum grund.
Glottir tungl og hrín við hrönn
og hratt flýr stund.
 
Kyndla vora hefjum hátt,
horfið kveðjum ár.
Dátt við dansinn stígum
dunar ísinn grár.
 
Bregðum blysum á loft,
bleika lýsum grund.
Glottir tungl og hrín við hrönn
og hratt flýr stund.
 
Nú er veður næsta frítt,
nóttin er svo blíð.
Blaktir blys í vindi
blaktir líf í tíð.
 
Bregðum blysum á loft,
bleika lýsum grund.
Glottir tungl og hrín við hrönn
og hratt flýr stund.

 Höfundur Jón Ólafsson

Myndir og texti fengin af síðu Reykjavíkurborgar.

Posted by: nordlingaholt | desember 15, 2009

N1 bensínstöðin í Norðlingaholti

N1
N1 hefur hafið framkvæmdir við sjálfsafgreiðslustöð að Elliðabraut 2.

Framkvæmdir N1 Elliðabraut 2 17.12. 2009N1 og GP verktakara hafa nú hafið framkvæmdir við grunn nýrrar 8 dælu sjálfsafgreiðslubensínstöðvar ásamt sjálfvirkri bílaþvottastöð fyrir N1 við Elliðabraut 2.

Samkvæmt teikningu á Borgarvefsjá verður innkeyrsla á lóð stöðvarinnar frá Breiðholtsbraut auk þessa sem að hægt að að keyra að  of frá henni frá Elliðabraut gegnt Selvaði 5.

4.11.2009 – - Fundur nr. 189 – Skipulagsráð


11. Elliðabraut 2 (04.772.101) 195947 Mál nr. BN040566
420307-3300 Umtak fasteignafélag ehf, Dalvegi 10-14, 200 Kópavogur
540206-2010 N1 hf, Dalvegi 10-14, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að byggja eldsneytis-sjálfafgreiðslustöð með dæluskyggni, 8 dælum og sjálfvirkri þvottastöð á lóð nr. 2 við Elliðabraut.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 23. október 2009 ásamt umsögn skipulagsstjóra frá 26. október 2009 fylgir erindinu.
Stærð: 143,7 ferm. 689,7 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 53.107
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Sjá nánar: http://fundir2.reykjavik.is/fundargerdir.asp?cat_id=31&mtg_id=1040192955732340&print=true&nolayout=

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

559. fundur 2009
Umsókn nr. 40566 (04.77.210.1)
420307-3300 Umtak fasteignafélag ehf
Dalvegi 10-14 200 Kópavogur
540206-2010 N1 hf
Dalvegi 10-14 201 Kópavogur
9. sjálfsafgreiðslustöð
Sótt er um leyfi til að byggja eldsneytis-sjálfafgreiðslustöð með dæluskyggni, 8 dælum og sjálfvirkri þvottastöð á lóð nr. 2 við Elliðabraut.
Stærð: 143,7 ferm. 689,7 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 53.107
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.
Elliðabraut 2,

Posted by: nordlingaholt | nóvember 8, 2009

AÐALFUNDUR ÍBÚASAMTAKA NORÐLINGAHOLTS

19. október 2009

Aðalfundur Íbúasamtaka Norðlingaholts verður haldinn í Norðlingaskóla mánudaginn 9. nóvember kl. 20.00.

Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar lagðir fram
3. Tillögur að lagabreytingum
4. Kosning stjórnar
5. Kosning skoðunarmanna reikninga
6. Önnur mál

Hvetjum sem flesta til að mæta.
STJÓRNIN

Posted by: nordlingaholt | nóvember 5, 2009

Menningardögum í Árbæ lokið með hvelli

Logo menningardaga

Dagskrá menningardaganna var sett í Ártúnsskóla miðvikudaginn 28.október og hófst með heimsókn
frú Vigdísi Finnbogadóttur í grunnskóla hverfisins.  Frú Vigdís ræddi við nemendur skólanna um
mikilvægi íslenskrar tungu, menntunar og las fyrir þá. 

 

Alls var boðið uppá milli 30 og 40 dagskrárliði á menningardögunum stóra og smáa. 
Fastur liður í dagskránni var pottakaffi í Árbæjarlaug þar sem góðir gestir mættu og
spjölluðu við pottagesti og allir nutu kaffimeðlætis frá Árbæjarbakaríi.  Árbæjalaug
og félagsmiðstöðvarnar Tían og Holtið stóðu fyrir heljarinnar sundlaugarpartýi á fimmtudagskvöldinu
þar sem saman komu um 200 manns og skemmtu sér konunglega.

 Um 100 manns var á sama tíma á göngu um Elliðarárdalinn með skátunum sem endaði
í skátaheimili Árbúa þar sem boðið var uppá kex, kakó og hressilegan söng skátakórsins.

 Á föstudeginum hélt veislan áfram og gafst íbúum kostur á ýmsu til að létta lund og auðga andann. 
Frístundaheimilin í hverfinu buðu uppá opið hús þar sem starfsemin var kynnt og börnin sýndu hvað
þau hafa verið að fást við.  Í anddyrir Heilsugæslu Árbæjar og þjónustumiðstöðvarinnar voru tónleikar
í boði nemenda Tónlistaskóla Árbæjar.  Í Norðlingaholtinu var stór stund í þegar Grænfáninn var dregin
að húni í annað sinn við Norðlingaskóla.  Þrátt fyrir hressilega rigningu komu saman mikill fjöldi barna,
foreldra og kennara til þess að fagna þeim áfanga. 

 Á laugardeginum ber hæst skemmtidagskrá í Fylkishöllinni þar sem Hanna Birna Kristjándóttir
borgarstjóri flutti ávarp, ungmenni úr æskulýðsstarfi kirkjunnar sýndu dansatriði og gospelkór
Árbæjarkirkju fór á kostum.  Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sýndi tæki  og búnað og skátafélagið Árbúar
komu með leiktæki og buðu uppá ketilkaffi og hikebrauð við anddyrir hallarinnar. 

 Á sunnudeginum fjölmenntu eldri borgarar í kaffisamsæti sem haldið var í félagsmiðstöðinni Hraunbæ 105
í boði hverfisráðs Árbæjar.  Raggi Bjarna fór á kostum og skemmti  gestum eins og honum er einum lagið.

 Dagskrá menningardaganna Árbænum lauk með húsfylli á léttmessu í Árbæjarkirkju þar sem
Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson fluttu tónlist. 
Endapunktinn á velheppnuðum menningardögum  átti skátafélagið Árbúar með glæsilegri flugeldasýningu
í lok léttmessunnar.

 Á heildina litið voru menningardagar  vel heppnaðir og í raun glæsilegt framtak sem byggja má á til framtíðar. 
Þeir buðu uppá fjölbreytta dagskrá sem undirstrikar það skemmtilega sem er að gerast í hverfinu og gefur tækifæri
á því að skipuleggja uppákomur sem krydda hið daglega líf. Í ljósi þeirrar reynslu sem skapaðist af þessum fyrstu
menningardögum er hér komið tækifæri til þess að skapa skemmtilega hefð í Árbæ og gera menningardaga að árlegum viðburði. Eins og áður sagði var það hverfisráð Árbæjar sem átti frumkvæðið að menningardögunum en til þess að vel takist til þurfa margir að koma að skipulagningu dagskrár og framkvæmd.  Hér í Árbæ var hugmyndinni að menningardögum vel tekið og komið var á breiðu samstarfi fjölda aðila í hverfinu sem lögðu sitt af mörkum,  má hér nefna grunnskólana,  Árbæjarkirkju,  bókasafnið Ársafn, Frístundamiðstöðina  Ársel , Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts, Árbæjarsundlaug, íþróttafélagið Fylki, skátafélagið Árbúa, Tónskóla Árbæjar, Tónskóla Sigursveins, Árbæjarþrek, Árbæjarsafn og Árbæjarbakarí.  Þessi upptalning er ekki tæmandi og hljóta allir sem lögðu fram til dagskrár mennigardaganna bestu þakkir fyrir

Posted by: nordlingaholt | nóvember 2, 2009

Hverfafundur um skipulagsmál í Árbæ

Minn Árbær, mín borg

Þitt hverfi… Opið hús um skipulag í þínu hverfi

Við minnum á fund með skipulagsyfirvöldum Reykjavíkurborgar sem haldinn verður í Árbæjarskóla þann 5. nóvember næstkomandi kl. 17-18.30. Þar munu fara fram umræður og hugmyndasmiðja um framtíðarskipulag Árbæjar, Ártúnsholts, Norðlingaholts og Grafarholts í tilefni af stefnumótun og endurskoðun á Aðalskipulagi Reykjavíkur.

Mælst er til þess að fólk komi með börnin enda munu nememdur Myndlistarskólans í Reykjavík verða með hugmynda- og listavinnustofa fyrir þau til að koma með hugmyndir að umhverfi sínu.

Vinnuhópur með aðferðum Air Opera

Júlíus Vífill Ingvarsson formaður skipulagsráðskynnir stuttlega vinnu við nýtt aðalskipulag áður en umræður hefjast.

Hugmyndasmiðja
Hugmynda- og teiknivinna með ungum arkitektum.

Vinnustofa fyrir börn
Undir stjórn Myndlistarskólans í Reykjavík.

Nánar hér og hér www.adalskipulag.is

Hverfamiðstöð

Posted by: nordlingaholt | október 30, 2009

Grænfánadagur Norðlingaskóla

grfd1

Í dag var Grænfánadagur Norðlingaskóla og Grænfáninn dreginn að húni í annað sinn.  Að því loknu var gengið niður í Björnslund þar sem Grænfáni Björnslundar var dreginn að húni og Íbúasamtök Norðlingaholts buðu upp á heitt kakó í lundinum.

grfd4grfd3grfd2grfd6grfd7

Myndir stolnar og stílfærðar af vefsíðu Norðlingaskóla, meira hér.

Older Posts »

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.